IS·EN
Um síðuna

Hvað er þetta?

Þetta kort er til að merkja staði þar sem mávar hafa sýnt af sér árásargirni, eða þar sem grunur leikur á að hreiður sé nálægt. Þú smellir á kortið þar sem atvikið átti sér stað. Athugasemd er valfrjáls, en gagnleg — t.d. hvað gerðist, hvenær, og/eða nánar um staðsetninguna (hvaða húsi, götuhorni, eða kennileiti hún tengist). Því nákvæmari sem athugasemdin er, því gagnlegri er merkingin fyrir aðra sem eiga leið um svæðið.

Kortið nær yfir póstnúmerin 103 og 108 í Reykjavík — svæðið utan þess er grátt og ekki hægt að merkja þar.

Óskráð(ur) eða með aðgang — hver er munurinn?

Þú þarft ekki aðgang til að merkja. Um leið og þú setur inn merkingu er hún tengd við vafrann þinn (með köku/cookie), sem leyfir þér að breyta eða eyða þinni eigin merkingu síðar — en bara úr sama vafra, á sama tæki.

Ef þú skráir þig á síðuna (frjálst, ekki nauðsynlegt) færist þetta yfir á aðganginn þinn í staðinn — sem þýðir að þú getur breytt/eytt þínum eigin merkingum af hvaða tæki sem er, ekki bara þeim vafra sem þú byrjaðir í.

← Til baka á kortið